Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 15. október 2020 22:30
Victor Pálsson
Segir að Arsenal hafi gert kaup sumarsins
Mynd: Getty Images
Thomas Partey voru kaup sumargluggans að sögn Kevin Campbell fyrrum leikmanns Arsenal en sá fyrrnefndi er nú genginn í raðir félagsins.

Partey kom til Arsenal frá Atletico Madrid fyrir 45 milljónir punda en hann var lengi á óskalista enska liðsins.

Campbell segir að Partey eigi að Arsenal hafi fengið Partey á gjafaverði og að svo góður leikmaður eigi að kosta mun meira í dag.

„Thomas Partey voru kaup sumargluggans. Fyrir Arsenal að fá hann á 45 milljónir punda er stórkostlegt," sagði Campbell.

„Atletico Madrid gerði mistök í kaupákvæðinu sem voru 45 milljónir. Hann er mun betri en verðið segir til um í þessum markaði. Arsenal borgaði það verð og fékk sinn mann."

„Þetta er lykilstaða fyrir félagið, hann er að nálgast hápunkt ferilsins og það mun nýtast Arsenal."

Athugasemdir
banner
banner