Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 15. nóvember 2019 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Engin betri lausn fyrir Bayern en Guardiola"
Pep Guardiola.
Pep Guardiola.
Mynd: Getty Images
Þýska goðsögnin Lothar Matthaus, sem lék með Bayern München lengi vel á sínum ferli, hefði ekkert á móti því að fá Pep Guardiola aftur til Bayern.

Guardiola stýrði Bayern frá 2013 til 2016 og vann þýsku úrvalsdeildina þrisvar, og bikarinn tvisvar.

Hann er núna hjá Manchester City þar sem hann hefur starfað frá 2016 með fínum árangri.

Bayern er án sjóra, en Hansi Flick hefur gert fína hluti á meðan hann hefur stýrt liðinu til bráðabirgða eftir brottrekstur Niko Kovac.

„Ef Bayern vill halda boltanum mikið innan liðsins þá er engin betri lausn en Guardiola," sagði Matthaus við Bild.

„Það væri sigur fyrir Bayern München og Bundesliguna að fá Guardiola."

Bild sagði á dögunum frá því að Guardiola gæti snúið aftur til Bayern, að hann væri enn í sambandi við stjórnarmenn félagsins.

Ljóst er að Guardiola tekur ekki við Bayern á næstu vikum en hins vegar gæti eitthvað gerst næsta sumar eða í framtíðinni að sögn Bild.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner