Sóknarmaðurinn Gabriel Jesus ætlar sér að vinna gegn Nicolas Otamendi og Sergio Aguero, liðsfélögum sínum hjá Manchester City, er Brasilía og Argentína mætast í vináttulandsleik í dag.
Erkifjendurnir Brasilía og Argentína eigast við klukkan 17:00 að íslenskum tíma í Sádí-Arabíu.
„Það er alltaf gaman að spila leiki af þessari stærðargráðu," sagði Jesus.
„Ég legg alltaf hart að mér, það eru stjörnuleikmenn í hinu liðinu líka. Vonandi verður þetta góður leikur og vonandi munum við vinna."
„Ég talaði við Otamendi. Ég grínaðist við hann og sagði að ef hann myndi rekast á mig, þá myndi ég gera það sama við hann."
„Þegar við erum saman hjá félagsliðinu, þá syndum við allir í sömu átt. Núna ver ég landið mitt, og þeir verja sitt land. Leyfum þeim að gera sitt besta, en það er rígur þarna á milli."
Brasilía er án Neymar og Ederson sem eru báðir meiddir. Á meðan gæti Lionel Messi snúið aftur hjá Argentínu, en hann er búinn að sitja af sér þriggja mánaða landsliðsbann sem hann fékk fyrir að saka mótshaldara á Copa America um spillingu.
Athugasemdir