Fotbolti.net
15.02.24 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Leggja til að Klinsmann verði rekinn

Klinsmann á fundi í gegnum fjarfundarbúnað frá heimili sínu í Bandaríkjunum.

Klinsmann á fundi í gegnum fjarfundarbúnað frá heimili sínu í Bandaríkjunum.

Canon

Mynd: Getty Images

Ráðgjafanefnd Suður-kóreska fótboltasambandsins telur að best sé að reka landsliðsþjálfarann Jurgen Klinsmann. Nefndin telur niðurstöðuna í Asíubikarnum óásættanlega og þá sé vandamál að Klinsmann er búsettur í Bandaríkjunum og mikið í fjarvinnu.

Ráðgjafanefndin tekur þó ekki bindandi ákvarðanir, nú er það í höndum framkvæmdaráðs sambandsins að taka ákvörðun um hvort bregðast eigi við tilmælunum.
Uppvakningafótbolti Klinsmann gagnrýndur - „Ætlar þú að segja af þér?“
TENGT EFNI

Uppvakningafótbolti Klinsmann gagnrýndur - „Ætlar þú að segja af þér?“

Suður-Kórea, sem er í 23. sæti FIFA-listans tapaði gegn Jórdaníu, sem er í 87. sæti, í undanúrslitum Asíubikarsins 2-0.

Suður-Kórea vann bara einn leik í venjulegum leiktíma á mótinu og leikaðferð Klinsmann verið harðlega gagnrýnd í fjölmiðlum í landinu. Leikur liðsins hefur verið kallaður „uppvakningafótbolti (zombie football)“ og sagt að hann hafi einungis reitt sig á einstaklingsgæðin innan hópsins.

Þá fór það í taugarnar á mörgum að Klinsmann hafi oft verið brosandi á hliðarlínunni á meðan illa gekk á mótinu.
Klinsmann var ráðinn landsliðsþjálfari Suður-Kóreu í febrúar í fyrra.

Klinsmann var ráðinn landsliðsþjálfari Suður-Kóreu í febrúar í fyrra.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.