Fotbolti.net
16.03.20 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Met í Football Manager spilun

Football Manager er vinsæll.

Football Manager er vinsæll.

Canon

Mynd: Football Manager

Um það bil 90 þúsund manns spiluðu tölvuleikinn Football Manager 2020 á sama tíma í gær en um er að ræða nýtt met.

Kórónaveiran hefur þau áhrif að margir eru í sóttkví eða hafa hægt um sig og tölvuleikir eru nú vinsæl afþreying.

Football Manager er þar á meðal en Antoine Griezmann, leikmaður Barcelona, er einn þeirra sem spilaði Football Manager í gær.

Margir hafa einnig spilað eldri útgáfur af Championship Manager og Football Manager undanfarna daga og má þar meðal annars nefna hinn goðsagnakennda leik CM 01/02.
CM 01/02 er af mörgum talinn besti tölvuleikur sögunnar.

CM 01/02 er af mörgum talinn besti tölvuleikur sögunnar.

Canon

Mynd: Football Manager

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.