Hörður Ingi Gunnarsson leikmaður ÍA er ekki skemmt eftir atvik sem kom upp eftir leik ÍA og FH sem fram fór í Pepsi Max-deildinni í gærkvöldi þar sem Skagamenn unnu Hafnfirðingana, 2-0.
„Ætla ekki að fara nefna nein nöfn hérna en að gefa mömmu minni og 11 ára systur minni puttann eftir leikinn í gær er ekki fullorðnum mönnum sæmandi, grow up...," skrifar Hörður Ingi á Twitter síðu sína.
Hörður hefur staðfest við Fótbolta.net að um var að ræða stuðningsmann FH.

Hörður Ingi er uppalinn í FH en hann hefur leikið með ÍA síðustu tvö sumur eftir að hafa spilað með HK og Víking Ólafsvík á undan því.
Mikil læti voru í leiknum í gær en Pétur Viðarsson varnarmaður FH fékk til að mynda beint rautt spjald í leiknum eftir að hafa spurt annan aðstoðardómara leiksins hvort hann væri þroskaheftur.
Twitter-færslu Harðar Inga má sjá hér að neðan.
Ætla ekki að fara nefna nein nöfn hérna en að gefa mömmu minni og 11 ára systur minni puttann eftir leikinn í gær er ekki fullorðnum mönnum sæmandi, grow up....
-- Hörður ingi (@hordur6) May 16, 2019
Athugasemdir