Fotbolti.net
16.07.18 - 21:55
Kristófer Jónsson

Helgi Sig: Erfitt þegar að staðan er 4-1 í hálfleik

Auglýsing
Helgi var að vonum ósáttur með úrslitin

Helgi var að vonum ósáttur með úrslitin

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helgi Sigurðsson, þjálfari Fylkis, var að vonum svekktur eftir 5-2 tap sinna manna í Egilshöllinni í kvöld. Fylkismenn voru lentir 2-0 undir eftir sjö mínútna leik.

<i>„Þetta eru slæm úrslit fyrir okkur. Við komum ekki nógu vel inní þennan leik og erum annan leikinn í röð að fá a okkur tvö mörk á fyrstu mínútunum sem er ekki boðlegt.\"</i> sagði Helgi eftir leikinn.
KR-ingar voru með öll völd á vellinum í fyrri hálfleik og var staðan 4-1 fyrir Vesturbæingunum þegar að Þóroddur flautaði til hálfleiks. Fylkismenn mættu beittari til leiks í seinni hálfleik.

„Seinni hálfleikurinn var mun betri og menn sýndu að þeir eru tilbúnir að berjast en leikurinn er orðinn ansi erfiður þegar að staðan er 4-1 í hálfleik.\"

Fylkir situr sem stendur í ellefta sæti deildarinnar með 11 stig en liðið hefur tapað fjórum leikjum í röð. Þeir heimsækja KA á Akureyrarvöll í næstu umferð. Helgi er bjartsýnn fyrir komandi tímum.

„Mér lýst vel á öll verkefni. Við verðum að fara í alla leiki eins og þeir eru úrslitaleikir. Við komum þarna galvaskir til leiks og ætlum okkur bara góða hluti.\" sagði helgi að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.