Fotbolti.net
16.07.26 - 12:00
Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson

Víkingur nær öruggur um Íslandsmeistaratitilinn en efstu þrjú lið öll í miklu formi

Þetta hefur verið gjöfult ár fyrir stuðningsmenn Víkings

Þetta hefur verið gjöfult ár fyrir stuðningsmenn Víkings

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spálíkan Metils gefur Víkingi 99,6% líkur á Íslandsmeistaratitlinum. Efstu liðin þrjú eiga það samt sameiginlegt að vera í miklu formi og hafa náð í mun fleiri stig en líkanið átti von á.
Víkingur er á toppnum með 40 stig eftir fjórtán leiki, átta stigum á undan KR. Í fyrstu spá Metils í apríl voru líkurnar á titlinum 48,9% og deildin nokkuð opin. Síðan hefur spáin færst nær vissu með hverri umferð og stendur nú í 99,6%.


Líkur Víkings á Íslandsmeistaratitlinum. Línan rís úr 48,9% í fyrstu spá í apríl upp í 99,6% í júlí á meðan línur hinna liðanna ellefu falla að núlli.


Líkanið metur sóknar- og varnarstyrk hvers liðs út frá markatölum allra leikja í sumar, leyfir styrknum að breytast yfir tímabilið og tekur tillit til heimavallar. Út frá því reiknar það væntanleg stig, hversu mörg stig lið hefði að jafnaði fengið úr leikjunum sem það hefur spilað. Sá samanburður segir aðra sögu en stigataflan. Munurinn er mestur hjá Fram, 11,2 stig, en Víkingur er 9,6 stigum yfir væntingum og KR 7,9. Öll þrjú hafa fengið meira út úr leikjum sínum en styrkur þeirra segir til um.


Fengin stig umfram væntanleg stig líkansins fyrir öll tólf lið deildarinnar. Fram er efst með +11,2 stig, þá Víkingur með +9,6 og KR með +7,9. FH er neðst með -6,3 stig.


Slíkt leikform jafnast yfirleitt út til lengdar og líkanið gerir ráð fyrir að styrkur liðanna, frekar en staðan í töflunni, spái best fyrir um framhaldið. Skýrasta dæmið er Fram sem er í þriðja sæti en aðeins með sjöttu bestu væntanlegu stigin. Toppsætinu breytir það varla úr þessu enda forskot Víkings orðið of stórt.


Neðar í töflunni snýst myndin við. FH er 6,3 stigum undir væntanlegum stigum sínum og situr í ellefta sæti þótt þau bendi til miðrar töflu. Breiðablik er svo nánast á pari við væntingar í fjórða sæti.


Deildin heldur áfram um helgina og á laugardag mætast Valur og Fram á Hlíðarenda, lið sitt hvorum megin við væntingar. Fram hefur mesta umframárangur deildarinnar en Valur er í hópi þeirra sem hafa fengið færri stig en efni stóð til.


Spáin miðast við stöðuna 12. júlí. Lifandi spá og staða allra liða er á metill.is/bestadeild-kk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.