Fotbolti.net
16.07.23 - 19:06
Hafliði Breiðfjörð

Hemmi: Vissi ekki hvað hann var að gera, sparkar og sparkar

Auglýsing
Hermann Hreiðarsson í eyjum í dag.

Hermann Hreiðarsson í eyjum í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net

„Það var svekkjandi að taka ekki þrjú stigin. Þau voru í boði hérna og við fengum færin til þess," sagði Hermann Hreiðarsson þjálfari ÍBV eftir 1-1 jafntefli við Keflavík í Vestmannaeyjum í dag.

„Völlurinn var erfiður, þurr og sticky. Við notuðum boltann ekki nógu vel en þetta snýst um að fá færi og við fengum færi. Við vorum klaufar með boltann en engu að síður erum við búnir að vera frábærir í 5-6 leiki og góður taktur. Þrátt fyrir að vera ekki á topp leveli vorum við með góða stjórn allan tímann á leiknum en áttum að nýta stöðurnar og færin betur."

Hermann fékk áminningu í fyrri hálfleik fyrir að mótmæla dómgæslu. Það tók hann smá tíma að rifja upp fyrir hvað enþað kom svo.

„Jújú ég man það alveg. Hermann er kominn og hann fer í hann til að meiða hann. Það var búið að flauta," sagði Hemmi en vildi hann víti og rautt?

„Við höfum fengið það mörg rauð á okkur fyrir skít og kanil og það er ekkert jafnvægi í því. Það er alveg klárt, ég nenni ekki að ræða það."

Keflavík fékk hinsvegar rautt spjald í leiknum, þú sást það, það var fyrir framan þig? Var það ekki rautt?

„Jú, ég vissi ekki hvað hann væri að gera. Hann sparkar bara aftur og aftur," sagði Hermann. „Þetta var glórulaust og áberandi rautt spjald."

Nánar er rætt við Hermann í spilaranum að ofan. Hann ræðir dauðafæri hjá Alex Frey Hilmarssyni í lokin, stöðuna á Eiði Aron Sigurbjörnssyni sem hann segir ekki frá út tímabilið þvert á orðróm í stúkunni, viðbeinsbrot Bjarka og fleira.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.