Fotbolti.net
16.08.20 - 21:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Setien rekinn frá Barcelona (Staðfest)

Setien rekinn frá Barcelona (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Búið er að reka Quique Setien úr starfi þjálfara Barcelona.

Hann tók liðinu í janúar eftir brottrekstur Ernesto Valverde. Undir hans stjórn missti liðið af Spánarmeistaratitlinum og féll úr leik gegn Bayern München í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á niðurlægjandi hátt. Börsungar töpuðu leiknum 8-2.
Eftir tapið gegn Bayern var það deginum ljósara að Setien yrði rekinn úr starfi.

Samkvæmt Fabrizio Romano eru Mauricio Pochettino, Ronald Koeman og Xavi efstir á lista Barcelona. Thierry Henry hefur einnig verið orðaður við starfið.

Það er stutt í næsta tímabil og Barcelona þarf að hafa hraðar hendur í þjálfaraleitinni, og fyrst og fremst þarf félagið að gera Lionel Messi ánægðan því hann er sagður ólmur í að komast burt.

Sjá einnig:
Messi óánægður og vill fara núna

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.