Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 16. september 2022 13:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
U21 hópurinn - Kristall klár í slaginn
Logi og Valgeir koma inn
Kristall og Sævar eru í hópnum.
Kristall og Sævar eru í hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Snorri Jónasson.
Davíð Snorri Jónasson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U21 landsliðsins, hefur opinberað leikmannahóp sinn fyrir komandi leiki gegn Tékklandi.

Leikið er heima og að heiman við Tékkland og tryggir sigurvegarinn sér farmiða á lokamót EM sem fram fer næsta sumar.

Fyrri leikurinn fer fram á Víkingsvelli eftir viku. Seinni leikurinn fer fram í Tékklandi þriðjudaginn 27. september.

Logi Tómasson og Valgeir Lunddal Friðriksson koma inn í hópinn frá síðasta verkefni í júní, Valgeir var þá í A-landsliðinu. Logi Hrafn Róbertsson er ekki með vegna meiðsla og Birkir Heimisson er ekki í hópnum. Kristall Máni Ingason er í hópnum en hann meiddist á öxl í lok ágúst og var talið ólíklegt að hann yrði með.

Hópurinn:
Hákon Rafn Valdimarsson - IF Elfsborg
Adam Ingi Benediktsson - FC Trollhättan

Brynjólfur Andersen Willumsson - Kristansund BK
Kolbeinn Þórðarson - Lommel SK
Ísak Óli Ólafsson - Esbjerg fB
Bjarki Steinn Bjarkason - Venezia FC
Ágúst Eðvald Hlynsson - Valur
Sævar Atli Magnússon - Lyngby BK
Finnur Tómas Pálmason - KR
Kristall Máni Ingason - Rosenborg BK
Valgeir Lunddal Friðriksson - BK Häcken
Viktor Örlygur Andrason - Víkingur R.
Kristian Nökkvi Hlynsson - Ajax
Róbert Orri Þorkelsson - CF Montreal
Atli Barkarson - SönderjyskE
Andri Fannar Baldursson - NEC Nijmegen
Dagur Dan Þórhallsson - Breiðablik
Orri Steinn Óskarsson - FC Köbenhavn
Ísak Snær Þorvaldsson - Breiðablik
Óli Valur Ómarsson - IK Sirius
Logi Tómasson - Víkingur R.
Þorleifur Úlfarsson - Houston Dynamo
Athugasemdir
banner
banner