Solanke á sölulista hjá Tottenham - Tilboðum Tottenham og Man Utd í Semenyo hafnað - Tottenham á eftir Samu
Heimir setur titlasöfnun til hliðar: Núna er að búa til eitthvað
Jökull: Endar ekki í efstu þremur nema hafa unnið fyrir því
Örvar tvöfaldaði markafjölda sinn: Ég var óheppinn þá
Höskuldur: Hefur verið geðshræringavika
Ólafur Ingi: Eins og þú sérð þá er þetta frábært lið
Pablo Punyed um framtíðina: Það kemur í ljós
Matti Villa: Geggjaður endir á frábæru tímabili og mínum ferli
Sölvi um Pablo og Matta Villa: Þetta eru algjörir sigurvegarar
Túfa um Val: Miðað við allt sem ég er búinn að gera á ég þetta ekki skilið
Aron Sig stendur við ummæli sín: Sjá allir að við erum að fara taka yfir
Elmar Atli sár og svekktur: Að taka þessa ákvörðun í þessari stöðu er óskiljanlegt
Var afskaplega drjúgur fyrir KR í úrslitaleikjunum
Luke Rae um hasarinn: Það var ekkert alvarlegt
Eiði Aroni fannst liðið gefast upp - „Ekki sjón að sjá okkur eftir bikartitilinn"
Tilfinningarnar báru Hrannar ofurliði
Óskar Hrafn: Skrifað í skýin að við fengjum þetta verkefni til að leysa
Björn Daníel leggur skóna á hilluna: Blóðið orðið svart og hvítt
Rúnar: Það mun vera í sögubókunum
Maggi: Opinn fyrir því að halda áfram
Lárus Orri: Ég vissi að það væri verið að gera góða hluti hérna á Akranesi
   lau 16. október 2021 17:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pablo Punyed: Ég elska að vinna
Pablo Punyed.
Pablo Punyed.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Ég elska að vinna," sagði Pablo Punyed, leikmaður Víkinga, eftir 3-0 sigur á ÍA í úrslitaleik Mjólkurbikarsins.

Lestu um leikinn: ÍA 0 -  3 Víkingur R.

Pablo kom til Víkings frá KR fyrir tímabilið og varð hann Íslandsmeistari með þriðja liðinu á Íslandi í síðasta mánuði; Stjörnunni, KR og síðast Víkingi. Pablo var lykilmaður hjá Víkingum í sumar.

Pablo elskar að vinna titla en hann var maður leiksins í dag er Víkingur varð bikarmeistari.

„Tilfinning er mjög góð. Hlutirnir féllu með okkur og ég er mjög stoltur af strákunum."

Pablo var spurður að því hvort Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, hefði tjáð honum að liðið myndi vinna tvennuna þegar hann gekk í raðir félagsins.

„Nei, ég sagði honum það," sagði Pablo léttur. Allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner