Ekroth telur að Víkingur myndi pluma sig vel í sænsku úrvalsdeildinni

Oliver Ekroth.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Ekroth kyssir Íslandsmeistaraskjöldinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Oliver Ekroth.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Fyrir viku síðan tilkynntu Íslands- og bikarmeistarar Víkings að sænski varnarmaðurinn Oliver Ekroth hefði skrifað undir nýjan samning út tímabilið 2026. Ekroth er 31 árs og er algjör lykilmaður i liði Víkings.
09.10.2023 17:05
Oliver Ekroth hjá Víkingi til 2026 (Staðfest)
Fyrir um hálfum mánuði eignaðist hann dóttur og óhætt að segja að lífið hafi leikið við hann á þessu ári.
„Ótrúlegt. Það má segja að þetta sé algjörlega magnað. Það má alveg segja að ég hafi átt gott ár," segir Ekroth hlæjandi í viðtali við Fotbollskanalen í heimalandi sínu þar sem hann ræddi um nýja samninginn við Víking.
Ekki erfið ákvörðun að framlengja við Víking
„Ég ræddi málin við maka minn og einnig við umboðsmanninn minn. Ég fylgist grannt með sænsku deildinni og maður saknar auðvitað deildarinnar, áhorfenda og leikvanganna. Svíþjóð er heimili mitt," segir Ekroth.
„En samt sem áður var það ekki erfið ákvörðun að vera hérna áfram, jafnvel þó ég sakni sænska boltans. Það varð fljótt ljóst að ég ætti að vera hérna áfram og ég vil ekki skipta því út. Ég get haldið áfram að fylgjast með sænska boltanum í sjónvarpinu."
„Víkingar hafa verið mjög ánægðir með mig í alla staði og vildu halda mér. Félagið ætlar að fjárfesta enn meira núna og þeir vilja að ég taki þátt í þeirri vegferð. Ég var að eignast dóttur og ég vildi ganga úr skugga um að hún og maki minn hefðu það gott eftir fæðinguna áður en ég tæki endanlega ákvörðun. Ég og félagið hittumst síðan og náðum fljótlega saman, varðandi þær kröfur sem ég hafði og fleira."
Markmið að komast í riðlakeppni Evrópu
„Nú er ljóst hvar við verðum næstu þrjú ár. Ég er mjög sáttur, okkur líður vel og á endanum var þetta auðveld ákvörðun. Við erum að vinna leiki og titla á færibandi," segir Ekroth sem stefnir á að komast í riðlakeppni Evrópu með Víkingi.
„Já, það er markmið að ná langt í Evrópu. Að komast í riðlakeppni í Evrópudeildarinnar eða Sambandsdeildarinnar er líklega stærsta markmiðið núna."
Ekroth var vanur því að vera í fallbaráttunni í Degerfors en er í toppbaráttunni á Íslandi. Hann segir mikinn mun á þessu tvennu.
„Það er eins og nótt og dagur. Geðheilsan verður svo miklu betri á allan hátt þegar þú ert að vinna titla og leiki. Þú sefur vel á nóttunni. Það er munur þegar þú ert alltaf að vinna í stað þess að berjast fyrir því að lifa af. Ég hef öðlast mikið traust frá þjálfaranum og leikstíll hans hentar mér vel. Ég finn að ég er í miklum metum, hef fengið enn stærra hlutverk í liðinu og mikil ábyrgð hvílir á mínum herðum, sem hentar mér fullkomlega," segir Ekroth.
Mikið spunnið í íslenska boltann
Hann segir styrkleika íslensku deildarinnar meiri en flestir halda og telur að Víkingur myndi standa sig vel í sænsku úrvalsdeildinni.
„Ég held að við yrðum um miðja deild í Allsvenskunni, kannski aðeins ofar. Við mættum Malmö í undankeppni Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili. Þeir voru kannski ekki upp á sitt besta á þeim tíma en við töpuðum einvíginu bara með einu marki. Svo má ekki gleyma því að það er mikill munur á félögunum hvað varðar fjárhag og aðstöðu. Þetta sýnir að það er mikið spunnið í íslenska boltann."
Þrátt fyrir nýja samninginn við Víking útilokar Ekroth ekki að snúa aftur í sænska fótboltann og klára ferilinn þar, ef skrokkurinn heldur vel.

TENGT EFNI
Úrvalslið ársins í Bestu deildinni 2023
Heimild: Fotbollskanalen

Ekroth kyssir Íslandsmeistaraskjöldinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir