Fotbolti.net
16.10.23 - 09:44
Elvar Geir Magnússon

Öryggisgæsla á Old Trafford aukin í ljósi nýjustu frétta

Öryggisgæsla á Old Trafford aukin í ljósi nýjustu frétta
Canon

Mynd: EPA

Ákveðið hefur verið að herða öryggis- og löggæslu í kringum næsta heimaleik Manchester United, sem verður gegn FC Kaupmannahöfn í Meistaradeildinni á þriðjudaginn í næstu viku.

Óttast er að læti verði í kringum leikinn á Old Trafford þar sem reiðir stuðningsmenn munu líklega mótmæla því að félagið verði áfram í meirihlutaeigu bandarísku Glazer fjölskyldunnar.
Sir Jim Ratcliffe er sá eini sem er í viðræðum um eignarhlut í Manchester United eftir að Sjeik Jassim bin Hamad al-Thani frá Katar gafst upp á að reyna að kaupa félagið 100% og ákvað að draga tilboð sitt til baka.

Ratcliffe hefur gert tilboð í 25% hlut í félaginu sem þýðir að Glazer fjölskyldan mun áfram eiga stærstan hluta.

Stjórn Man Utd kýs um tilboð Ratcliffe
TENGT EFNI

Stjórn Man Utd kýs um tilboð Ratcliffe

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.