Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 16. nóvember 2020 18:30
Brynjar Ingi Erluson
Baresi: Zlatan er eins og Gullit og Van Basten
Zlatan Ibrahimovic
Zlatan Ibrahimovic
Mynd: Getty Images
Franco Baresi, fyrrum varnarmaður AC Milan og ítalska landsliðsins, segir að Zlatan Ibrahimovic sé svipaður hollensku goðsögnunum Ruud Gullit og Marco Van Basten.

Zlatan er 39 ára gamall og er enn að raða inn mörkum en hann hefur gert 9 mörk í 9 leikjum til þessa.

Baresi hrósar hugarfari sænska framherjans og segir hann minna sig á þá Van Basten og Gullit sem voru partur af gríðarlega öflugu liði MIlan á níunda og tíunda áratugnum.

„Það er ótrúlegt hvað hann er fær um að gera og hvað hann gefur liðsfélögum sínum. Hann er með hugarfar á við tvítugan einstakling," sagði Baresi.

„Van Basten og Gullit voru með sterkir líkamlega og voru með svipaðan persónuleika og hann er að hafa sömu áhrif á Milan-liðið og þeir gerðu á sínum tíma."

„Hann er í góðu líkamlegu formi og vill halda áfram að koma fólki á óvart,"
sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner