Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 16. nóvember 2020 14:24
Elvar Geir Magnússon
Doherty og McClean með veiruna
Matt Doherty.
Matt Doherty.
Mynd: Getty Images
Írsku landsliðsmennirnir Matt Doherty og James McClean hafa greinst með Covid-19 veiruna.

Írland tapaði 1-0 gegn Wales í Cardiff í gærkvöldi og mun leika úrslitaleik um að falla ekki í Þjóðadeildinni á miðvikudag þegar leikið verður gegn Búlgaríu.

McClean er hjá Stoke og var valinn maður leiksins hjá Írum gegn Wales en er nú kominn í eingangrun líkt og Doherty og þeir verða ekki með gegn Búlgaríu. Doherty er hjá Tottenham.

Aðrir í hópnum fengu allir neikvæða niðurstöðu úr skimunum.

Fjórir leikmenn Írlands hafa greinst með Covid-19 í þessari viku. Alan Browne greindist með veiruna á föstudag og Callum Robinson í síðustu viku.

Í síðustu viku tapaði Írland 3-0 í vináttulandsleik gegn Englandi en Ísland mun einmitt mæta Englandi í Þjóðadeildinni á miðvikudag.


Athugasemdir
banner