Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 17. janúar 2020 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Lampard: Ross Barkley fer ekki neitt
Mynd: Getty Images
West Ham United hefur áhuga á að fá Ross Barkley lánaðan frá Chelsea út tímabilið. David Moyes hefur miklar mætur á honum eftir að hafa starfað saman hjá Everton.

Frank Lampard, stjóri Chelsea, er þó búinn að útiloka þessa hugmynd Hamranna. Hann segir Barkley ekki vera á förum í janúar enda sé hann mikilvægur liðsmaður.

„Ross Barkley fer ekki neitt. Hann er okkar leikmaður og er búinn að standa sig vel í síðustu leikjum," sagði Lampard.

„Ross hefur ekki fengið mikinn spiltíma á tímabilinu vegna sérstakra aðstæðna en ég hef mikla trú á honum og er mjög ánægður með hann."
Athugasemdir
banner
banner
banner