Fotbolti.net
17.01.21 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Fram semur við þrjá leikmenn

Fram semur við þrjá leikmenn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Fram var að bæta þremur efnilegum leikmönnum við kvennalið sitt sem skrifuðu undir eins árs samninga við félagið.
Freyja Sól Kristinsdóttir er elst þeirra þriggja. Hún er fædd 2000 og býr yfir mikilli reynslu úr íslenska boltanum eftir að hafa spilað 57 keppnisleiki fyrir Sindra undanfarin fimm ár.

Freyja Sól er varnarmaður rétt eins og Erika Rún Heiðarsdóttir. Erika Rún er 19 ára og kemur til Fram frá Aftureldingu. Hún hefur spilað 41 leik á ferlinum fyrir Víking Ólafsvík og Aftureldingu.

Þá er Oddný Sara Helgadóttir einnig komin til félagsins. Hún er 19 ára kantmaður sem er uppalin hjá FH en á enga leiki að baki fyrir meistaraflokk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.