Roy Keane, fyrrverandi leikmaður Manchester United, hefur gagnrýnt leikmenn Arsenal vegna þess hversu mikið þeir fögnuðu í lok leiks í gær.
Arsenal skellti Newcastle með fjórum mörkum gegn engu en eftir jafnan fyrri hálfleik þá gekk Arsenal á lagið í þeim síðari. Roy Keane var hins vegar ekki hrifinn af fagnaðarlátunum.
Arsenal skellti Newcastle með fjórum mörkum gegn engu en eftir jafnan fyrri hálfleik þá gekk Arsenal á lagið í þeim síðari. Roy Keane var hins vegar ekki hrifinn af fagnaðarlátunum.
„Ég hélt að þeir væru að ná tíu stiga foyrstu á toppi deildarinnar með þessum fagnaðarlátum. Fáranlegt," sagði Keane á Sky Sports en hann og Jamie Carragher munu kryfja leik Chelsea og Manchester United í kvöld.
Arsenal er í tíunda sæti deildarinnar, fimm stigum frá fimmta sætinu en það gæti gefið sæti í Meistaradeild Evrópu, standi bann Man City.
Athugasemdir