Fotbolti.net
17.03.20 - 16:42
Elvar Geir Magnússon

Síminn Sport rukkar ekki áskrifendur

Síminn Sport rukkar ekki áskrifendur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Síminn mun ekki gjaldfæra fyrir áskrift að Síminn Sport frá og með 1. apríl og á meðan að þetta ástand varir. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Áskrift að Síminn Sport
Öllum leikjum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hefur verið frestað vegna heimsfaraldurs COVID-19. Hvenær boltinn byrjar aftur að rúlla á Síminn Sport á eftir að koma í ljós en Síminn mun ekki gjaldfæra fyrir áskrift að Síminn Sport frá og með 1. apríl og á meðan að þetta ástand varir.

Viðskiptavinir okkar þurfa því ekkert að gera eða hafa óþarfa áhyggjur af áskriftinni. Hún verður virkjuð á ný þegar Enska úrvalsdeildin fer aftur af stað. Hugið frekar að eigin heilsu, vinum og ættingjum á þessum fordæmalausu tímum.


‍
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.