17.05.17 - 22:14
Þórir Karlsson
Stebbi Gísla: Okkur langaði að stríða þeim
Auglýsing

Stefán Gíslason þjálfari Hauka.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán Gíslason þjálfari Hauka.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haukar og Víkingur frá Reykjavík mættust á Gaman Ferða vellinum í Hafnafirði í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld og lauk leiknum með 2-4 sigri Víkinga, sem eru því komnir áfram í 16-lið úrslit bikarsins.
En hver voru fyrstu viðbrögð Stefáns Gíslasonar þjálfara Hauka eftir leik?
En hver voru fyrstu viðbrögð Stefáns Gíslasonar þjálfara Hauka eftir leik?
“Maður er náttúrulega alltaf svektur að leikurinn skildi enda svona eftir fína byrjun. Okkur langaði að stríða þeim og skoruðum mark snemma og höfðum möguleiki til að setja annað þarna í byrjun, en við missum svo mómentið og þeir skora mjög flott mark og koma sér inní leikinn, síðan bara einhvern vegin náum við ekki að halda dampi. Við byrjum illa seinni hálfleikinn og þeir refsa okkur fyrir það og það er eiginlega svona í grunninn, þeir refsa okkur fyrir okkar mistök.”
Haukar spiluðu án Björgvins Stefánssonar og Baldins Sturlusonar í kvöld og hafði Stebbi eftirfarandi að segja um þá:
“Bjöggi fékk aðeins aftan í lærið í síðasta leik og Balli er svona meira bara verið hvíla, fókusinn hjá okkur er fyrst og fremst á deildina og bikarinn er bónus, nú er hann búinn svo við einbeitum okkur núna að deildinni og það er erfiður leikur næsta sunnudag sem við erum farnir að undirbúa okkur fyrir.”
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.