Fotbolti.net
17.05.19 - 22:10
Orri Rafn Sigurðarson
Í samstarfi við styrktaraðila

Vignir Snær: Ég er sektarstjórinn!

Auglýsing
Vignir Snær leikmaður Víkings Ó.

Vignir Snær leikmaður Víkings Ó.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur og Víkingur Ó. áttust við á Eimskipsvellinum í Laugardal í kvöld þar sem Víkingar fóru með 2-1 sigur af hólmi í mjög sérstökum leik.

<i>„Virkilega góð tilfinning í lokin að ná að klára leikinn."</I> Sagði Vignir Snær leikmaður Víkings Ó. eftir leik.
Víkingar skora strax í byrjun leiks og virðast svona hafa tökin á leiknum í fyrri hálfleik. Heimamenn taka öll völd a vellinum í seinni hálfleik á meðan gestirnir fá varla færi, það hlýtur því að vera rosalega sætt að hirða þrjú stig í svona erfiðum leik?

„Við byrjum mun betur fyrstu 25 og virkum sterkari aðillinn í leiknum en svo kemur smá down kafli og það sama gerist í síðari hálfleik. Við fengum tvö færi í seinni hálfleik og nýttum eitt og siglum þessu heim."

Vignir fékk gult spjald í uppbótartíma fyrir að tefja.

„Ég skil ekki hvernig eg get tekið þetta gula spjald á mig! Ég er bara taka innkast og þá mætir bara sjúkraþjálfarinn og ætlar bara spreyja á mig í dead leggið."

Þarf hann að borga sekt fyrir þetta gula spjald innan félagsins?

„Ég er sektarstjórinn þannig ég þarf að henda á mig 2000 króna sekt fyrir þetta, eða bara á sjúkraþjálfarann við þurfum bara ða ræða þetta! Sagði Vignir að lokum."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.