Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 17. júní 2019 17:57
Ívan Guðjón Baldursson
Inkasso-deildin: Keflavík sigraði í Ólafsvík
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Víkingur Ó. 0 - 1 Keflavík
0-1 Adam Árni Róbertsson ('64)

Víkingur fékk Keflavík í heimsókn til Ólafsvíkur í eina keppnisleik þjóðhátíðardagsins og síðasta leik í 7. umferð Inkasso-deildarinnar.

Staðan var markalaus eftir bragðdaufan fyrri hálfleik, þar sem Keflvíkingar gerðu sig líklega til að komast yfir fyrir leikhlé en tókst ekki.

Í seinni hálfleik komust gestirnir yfir með laglegu marki frá Adami Árna Róbertssyni. Hann skoraði þá með skoti utan teigs sem fór í stöngina og inn.

Heimamenn vöknuðu til lífsins og áttu skot í stöng en meira var ekki skorað. Mikilvægur sigur Keflavíkur staðreynd.

Toppbaráttan fer afar skemmtilega af stað þar sem aðeins tvö stig skilja efstu fjögur lið deildarinnar að.

Keflavík og Víkingur Ó. eru saman með 13 stig. Þór er á toppinum með 15 stig.

Stöðutöfluna má sjá hér fyrir neðan. Það tekur hana tíma að uppfærast.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner