Fotbolti.net
17.07.16 - 22:08
Jóhann Ingi Hafþórsson
Skrifar frá: Floridana vellinum

Albert Brynjar: Getum verið svona drullulélegir

Auglýsing
Albert Brynjar Ingason.

Albert Brynjar Ingason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Allt, það var einbeitingarleysi hjá öllu liðinu varnarlega. Við slökkvum á okkur í nokkur skipti. KR er með góða einstaklinga. Ef við gerum svona mistök, verður okku refsað,\"</i> sagði Alber Brynjar Ingason, framherji og fyrirliði Fylkis, eftir 4-1 tap gegn KR í kvöld.

Hann var ansi ósáttur við mörkin sem liði fékk á sig í dag.
„Öll mörkin eru barnaleg á okkar hálfu, ekki að pikka um menn og missa boltann á heimskulegum stöðum.\"

KR-ingar voru komnir 2-0 yfir eftir aðeins tíu mínútur og var það erfiður róður hjá Fylki eftir það.

„Við bjuggum til mikinn mótvind í þessum leik með að mæta ekki til leiks, það var algjörlega andstæða við það sem við ætluðum að gera. Ef við erum með slökkt á okkur, getum við verið svona drullulélegir eins og við vorum í dag.\"

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.