Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 17. júlí 2021 23:30
Victor Pálsson
Greenwood væri mest til í að ræða við Rooney
Mynd: EPA
Mason Greenwood, leikmaður Manchester United, hefur nefnt þann fyrrum leikmann liðsins sem hann væri mest til að geta rætt við og beðið um ráð.

Greenwood sat fyrir svörum á heimasíðu Man Utd og nefndi þar Wayne Rooney sem er markahæsti leikmaður í sögu félagsins.

Ef Greenwood myndi leita ráða hjá einhverjum þá væri það Rooney sem er í dag stjóri Derby County.

„Persónulega þá myndi ég örugglega velja Wayne Rooney. Hann hefur gert þetta allt saman og er markahæstur í sögunni," sagði Greenwood.

„Ég myndi örugglega spyrja hann, ekki hvernig hann spilar því það er hægt að sjá það, heldur kannski um ráð hvernig er best að komast á milli varnarmanna og lesa leikinn betur."

„Hann skoraði mörg hundruð mörk fyhrir United. Það er spurningin sem ég myndi spyrja."
Athugasemdir
banner
banner
banner