Breiðablik er Íslandsmeistari í 5. flokki kvenna A liða 2020.
Breiðablik og Stjarnan áttust við í frábærum og skemmtilegum úrslitaleik á Samsungvellinum í Garðabæ síðastliðin sunnudag.
Fjölmennt var á leiknum og mikil stemming í stúkunni. Leikurinn var mjög spennandi og mikil skemmtun frá upphafi til enda.
Edith Kristín Kristjánsdóttir skoraði eina mark leiksins á 35 mínútu fyrir Blika og fór svo að Breiðablik sigruðu 1-0 og hömpuðu Íslandsmeistaratitlinum í 5. flokki kvenna A liða árið 2020.
Athugasemdir