Byrjunarlið Íslands sem mætir Lettlandi í undankeppni EM á Laugardalsvelli hefur verið tilkynnt. Leikurinn hefst klukkan 18:45.
Sveindís Jane Jónsdóttir, leikmaður Breiðabliks er í byrjunarliðinu og leikur sinn fyrsta landsleik. Liðsfélagar hennar Alexandra Jóhannsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir eru einnig í byrjunarliðinu, en þetta er einnig fyrstu leikur Karólínu í byrjunarliði.
Athygli vekur einnig að Gunnhildur Yrsa byrjar í hægri bakverði.
Byrjunarlið Íslands (4-3-3):
Sandra Sigurðardóttir (m)
Hallbera Gísladóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Alexandra Jóhannsdóttir
Sara Björk Gunnarsdóttir (f)
Dagný Brynjarsdóttir
Sveindís Jane Jónsdóttir
Elín Metta Jensen
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
Athugasemdir