Ripdford, sem spilar í elleftu deild í Þýskalandi, tapaði 37-0 þegar liðið mætti SV Holdenstedt um síðustu helgi.
Leikmen Ripdorf ákváðu að virða tveggja metra regluna í leiknum þar sem þeir óttuðust að leikmenn Holdenstedt hefðu smitast af kórónuveirunni í leik um þarsíðustu helgi.
Leikmen Ripdorf ákváðu að virða tveggja metra regluna í leiknum þar sem þeir óttuðust að leikmenn Holdenstedt hefðu smitast af kórónuveirunni í leik um þarsíðustu helgi.
Holdenstedt mætti Eddelstorf á dögunum og leikmaður síðarnefnda liðsins greindist síðar með kórónuveiruna. Allir leikmenn Holdenstedt fóru í kórónuveirupróf og greindust neikvæðir en leikmenn sluppu við að fara í 14 daga sóttkví.
Þetta voru forráðamenn og leikmenn Ripdorf ósáttir með og þeir vildu fresta leiknum við Holdenstedt.
Yfirvöld ákváðu að leikurinn myndi fara fram og þá ákváðu leikmenn Ripdorf að virða tveggja metra regluna allan leikinn. Þeir fóru því ekki nálægt andstæðingum sínum í leiknum og töpuðu fyrir vikið 37-0.
Athugasemdir