Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 17. september 2022 13:25
Kári Snorrason
Byrjunarlið ÍA og Leiknis: Kaj Leo á bekknum hjá ÍA
Kaj Leo er á bekknum hjá ÍA í dag
Kaj Leo er á bekknum hjá ÍA í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Róbert Hauksson kemur inn í lið Leiknis R.
Róbert Hauksson kemur inn í lið Leiknis R.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Liðin í fallsætunum ÍA og Leiknir R. mætast í fallbaráttuslag á Norðurálsvellinum í dag. ÍA er í neðsta sæti eftir að hafa fengið skell gegn FH í síðustu umferð og mætir Leikni í öðrum innbyrðis fallbaráttuslag. Breiðhyltingar eiga möguleika á því að koma sér upp úr fallsæti með sigri og hagstæðum úrslitum.

Lestu um leikinn: ÍA 1 -  2 Leiknir R.

Jón Þór Hauksson gerir 3 breytingar á liði sínu frá 6-1 tapi gegn FH.
Haukur Andri, Oliver Stefánsson og Árni Salvar Heimisson koma allir inn í liðið í stað Tobias Stagaard, Kaj Leo Í Bartalstovu og Arons Bjarka Jósepssonar, sem er meiddur.

Sigurður Höskuldsson gerir 3 breytingar á sínu liði. Þeir Zean Dalügge og Gyrðir Hrafn eru báðir í banni og eru því ekki með í dag. Adam Örn Arnarsson er einnig er ekki með í dag. Inn í liðið koma þeir Ósvald Jarl Traustason, Kristófer Konráðsson og Róbert Hauksson.

Byrjunarliðin eru eftirfarandi.

Byrjunarlið ÍA
1. Árni Marinó Einarsson (m)
3. Johannes Vall
4. Oliver Stefánsson
5. Wout Droste
10. Steinar Þorsteinsson (f)
17. Gísli Laxdal Unnarsson
19. Eyþór Aron Wöhler
21. Haukur Andri Haraldsson
22. Benedikt V. Warén
24. Hlynur Sævar Jónsson
27. Árni Salvar Heimisson

Byrjunarlið Leiknis R.
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
2. Hjalti Sigurðsson
3. Ósvald Jarl Traustason
4. Bjarki Aðalsteinsson (f)
5. Daði Bærings Halldórsson
10. Kristófer Konráðsson
15. Birgir Baldvinsson
18. Emil Berger
21. Róbert Hauksson
33. Davíð Júlían Jónsson
80. Mikkel Jakobsen

Beinar textalýsingar:
14:00 Breiðablik - ÍBV
14:00 Víkingur - KR
14:00 Valur - KA
14:00 Stjarnan - FH
14:00 Fram - Keflavík
14:00 ÍA - Leiknir
Athugasemdir
banner
banner
banner