Fotbolti.net
17.10.23 - 00:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hinrik Harðar búinn að semja við ÍA

Hinrik Harðar búinn að semja við ÍA
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á X (Twitter) reikningi ÍA hefur verið vakin athygli á því að von sé á tíðindum frá félaginu vegna undirskriftar.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur félagið náð samkomulagi um kaup á Hinriki Harðarsyni sem kemur frá Þrótti.
„Eðlilega er mikill áhugi á Hinriki" -  Þróttarar vilja halda Lennon
TENGT EFNI

„Eðlilega er mikill áhugi á Hinriki" - Þróttarar vilja halda Lennon

Hinrik hefur verið orðaður við mörg félög í haust og var ÍA á meðal þeirra. ÍA bauð í sóknarmanninn í sumarglugganum en Þróttur hafnaði tilboðinu.

Hinrik er nítján ára og var hann valinn efnilegasti leikmaður Lengjudeildarinnar í sumar. Hann skoraði ellefu mörk í 22 leikjum og hjálpaði Þrótti að halda sæti sínu í deildinni.

„Hinrik er með markaskoraragenið frá föður sínum, Herði Magnússyni," sagði í vali Fótbolta.net á efnilegasta leikmanni deildarinnar.

Hinrik er annar leikmaðurinn sem ÍA fær eftir að liðið tryggði sér sæti í Bestu deildinni. Fyrsti leikmaðurinn var Marko Vardic sem kom frá Grindavík.


Hin hliðin - Hinrik Harðarson (Þróttur R.)
TENGT EFNI

Hin hliðin - Hinrik Harðarson (Þróttur R.)

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.