Pierre-Emerick Aubameyang, fyrirliði Arsenal, missti af tækifærinu til að skora þrennu gegn Newcastle United í kvöld en hann fór af velli á 79. mínútu útaf ófyrirsjáanlegum aðstæðum.
Aubameyang skoraði tvö mörk í síðari hálfleik gegn Newcastle en hélt í vonina um að ná inn þriðja markinu.
Á 79. mínútu byrjaði hann þó að finna fyrir verk í maganum og neyddist til að fara af velli og hlaupa á klósettið.
Willian kom inn í hans stað og missti því Aubameyang af tækifærinu til að skora þriðja markið.
„Já, hann þurfti að fara inn í klefa þannig við breyttum aðeins til," sagði Arteta og brosti en hann staðfesti við blaðamenn að hann væri að glíma við einhver magavandamál.
Athugasemdir