Harry Maguire, varnarmaður Manchester United, sagði við bróðir sinn fyrir leikinn gegn Chelsea í gær, að hann myndi skora eftir horn.
Man Utd vann leikinn með tveimur mörkum gegn engu þar sem Maguire skoraði með skalla eftir hornspyrnu frá Bruno Fernandes.
Man Utd vann leikinn með tveimur mörkum gegn engu þar sem Maguire skoraði með skalla eftir hornspyrnu frá Bruno Fernandes.
„Strákurinn sagði að hann myndi skora í kvöld!" skrifaði Laurence, bróðir Harry, á Twitter þar sem hann lét skjáskot fylgja með.
Margir telja að Harry Maguire var heppinn að vera ennþá inni á vellinum en hann virtist sparka viljandi í Mitchy Batshuayi þegar þeir áttust við utan vallarins. Harry sagði að hann hefði einungis verið að verja sjálfan sig og þetta hafi verið hans viðbrögð.
Hér að neðan má sjá skjáskotið sem Laurence deildi á Twitter.
The boy said he would score tonight 😂🙌🏻@HarryMaguire93 🔴⚪️⚫️ pic.twitter.com/yEtc0PesOr
— Laurence Maguire (@_lozmaguire) February 17, 2020
Athugasemdir