Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 18. febrúar 2021 20:30
Aksentije Milisic
Danmörk: Stefán skoraði í sigri Silkeborg - Patrik hélt aftur hreinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefán Teitur Þórðarson og Patrik Sigurður Gunnarsson voru í eldlínunni með Silkeborg þegar liðið mætti Kolding IF í dönsku fyrstu deildinni í kvöld.

Silkeborg, sem er í þriðja sæti deildarinnar, vann góðan 3-0 sigur þar sem Stefán Þórðarson skoraði eitt marka liðsins. Markið var fallegt skot af löngu færi.

Þetta var í fyrsta skiptið á tímabilinu sem Stefán spilar allan leikinn fyriri Silkeborg.

Patrik Sigurður hefur núna spilað tvo leiki fyrir liðið og haldið hreinu í þeim báðum. Nicklas Helenius gerði tvennu fyrir heimamenn í öðrum leiknum í röð en hann kom til liðsins frá AGF í janúar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner