Norski framherjinn Erling Braut Haaland skoraði tvívegis í 3-2 útisigri Borussia Dortmund á Sevilla í Meistaradeildinni í gærkvöldi.
Haaland segist hafa sótt innblástur til Kylian Mbappe sem skoraði þrennu fyrir PSG í 4-1 útisigri á Barcelona í fyrrakvöld.
Haaland segist hafa sótt innblástur til Kylian Mbappe sem skoraði þrennu fyrir PSG í 4-1 útisigri á Barcelona í fyrrakvöld.
„Þegar ég sá Mbappe skora þrennu fékk ég fría hvatningu svo ég verð að þakka honum fyrir," sagði Haaland eftir leikinn í gær.
„Hann skoraði góð mörk og ég fékk fría hvatningu frá honum. Það var gott."
Hinn tvítugi Haaland hefur skorað 18 mörk í 13 leikjum í Meistaradeildinni og vantar nú eitt mark til að jafna met í eigu Mbappe sem skoraði 19 mörk í Meistaradeildinni áður en hann varð 21 árs.
Athugasemdir