Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 18. mars 2020 19:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gary Neville: Heilbrigðisstarfsfólk fær aðgang að Hotel Football
Mynd: Getty Images
Gary Neville, fyrrum leikmaður Manchester United og núverandi meðeigandi Hotel Football í Manchester, hefur greint frá því að þau tvö hótel sem hann og Ryan Giggs eiga saman verði opinn fyrir heilbrigðisstarfsfólk því að kostnaðarlausu.

Hotel Football er á tveimur stöðum í Manchester. Fyrr í dag opnaði Chelsea Millenium Hótelið við Stamford Bridge fyrir heilbrigðisstarfsfólk.

Þetta er gert til að aðstoða á þessum kórónaveiru tímum. Frá og með föstudeginum verður Hotel Football opið og getur heilbrigðisstarfsfólk gist þar.

„Frá og með föstudeginum verða okkar 176 rúm nýtt af heilbrigðisstarfsfólki og öðrum sérfræðingum," segir Neville.

„Það er á tímum sem þessum sem okkar iðnaður verður að sýna styrk, ekki einungis fyrir okkar starfsfólk heldur einnig fyrir þá sem þurfa mesta á okkur að halda á komandi mánuðum."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner