Það eru fjórir leikir á dagskrá í Lengjubikarnum þennan fimmtudaginn.
Tveir leikir fara fram í karlaflokki og eru þeir báðir í C-deild. Berserkir og Árborg mætast á Víkingsvelli í riðli númer 2 og þá fær KB lið Ísbjarnarins í heimsókn á Domusnovavöllinn í riðli númer 6.
Í B-deild í kvennaflokki eru tveir leikir á dagskrá. Grótta fær Augnablik í heimsókn á Vivaldivöllinn og þá mætast HK og Afturelding í kórnum.
Lengjubikar karla - C-deild, riðill 2
20:00 Berserkir-Árborg (Víkingsvöllur)
Lengjubikar karla - C-deild, riðill 6
20:00 KB-Ísbjörninn (Domusnovavöllurinn)
Lengjubikar kvenna - B-deild
19:00 Grótta-Augnablik (Vivaldivöllurinn)
20:00 HK-Afturelding (Kórinn)
Athugasemdir