Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 18. mars 2021 21:03
Victor Pálsson
Mourinho gagnrýnir hugarfar leikmanna - „Áttuðu sig á þessu eftir seinna markið"
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho og hans menn í Tottenham eru úr leik í Evrópudeildinni eftir leik við Dinamo Zagreb í Króatíu í kvöld.

Þjálfaralaust Zagreb vann leikinn með þremur mörkum gegn engu og tryggði farseðilinn í 8-liða úrslit.

Þessi úrslit koma verulega á óvart en Tottenham vann fyrri leikinn 2-0 og var því í þægilegri stöðu áður en flautað var til leiks.

Mourinho var að vonum súr á svip er hann ræddi við blaðamenn eftir leik og gagnrýndi hugarfar sinna leikmanna.

„Mitt lið, ég endurtek, mitt lið leit ekki út fyrir að vera að spila mikilvægan leik," sagði Mourinho eftir tapið.

„Ég var að koma úr búningsklefa Dinamo þar sem ég hrósaði þeim fyrir leikinn. Það eru vonbrigði að hugarfar liðsins sem er ekki mitt hafi unnið leikinn."

„Ég varaði leikmenn við röngu hugarfari fyrir leikinn og í hálfleik en svo gerðist þetta. Ég tel að þeir hafi aðeins áttað sig á þessu eftir seinna markið."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner