Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 18. apríl 2021 13:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Man Utd leiðir í baráttunni um Sarr - Varane til Englands?
Powerade
Pape Sarr til United?
Pape Sarr til United?
Mynd: EPA
Raphael Varane
Raphael Varane
Mynd: Getty Images
Þá er komið að slúðrinu í boði Powerade. Það er í seinni kantinum þennan sunnudaginn en það er BBC sem tekur það saman.



Talið er að Jose Mourinho verði ekki áfram stjóri Tottenham á næstu leiktíð en Spurs er í brasi að ná Meistaradeildarsæti. (Football.London)

Paul Pogba (28) vill 500 þúsund pund í vikulaun ef hann á að skrifa undir nýjan samning við Man Utd. Real Madrid, PSG og Juve vita af þessari upphæð ef United nær ekki að sannfæra Pogba. (Star)

Chelsea ætlar að keppa við Man Utd um Raphael Varane (27). Varane virðist á leið burt frá Real. (Christian Falk, Bild)

Wolves vill selja Adama Traore (25) í sumar til að fjármagna kaup á nýjum leikmanni. Traore er talinn falur fyrir um 30 milljónir punda. (Football Insider)

Tottenham fylgist áfram með Emerson (22) sem er á láni hjá Betis frá Barcelona. Emerson er hægri bakvörður. (Mundo Deportivo)

Gini Wijnaldum (30) er á leið til Barcelona því hann vill spila með Lionel Messi. Einnig eru líkur á að Memphis Depay fari til Barca. (Mirror)

Framtíð Tammy Abraham (23) er óljós eftir að Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, ákvað að velja hann ekki í leikmannahópinn gegn Man City í gær. (Mail)

AC Milan hefur látið Chelsea vita að félagið ætli sér að nýta sér kaupákvæðið í lánssamningi Fikayo Tomori (23). (Football Insider)

Aston Villa og Crystal Palace hafa áhuga á Ruben Loftus-Cheek (25) sem er á láni frá Chelsea hjá Fulham. (TeamTalk)

Leeds vill fá Nicolas Tagliafico (28) frá Ajax og Ryan Kent (24) frá Rangers. (Sun og Mirror)

Manchester United leiðir kapphlaupið um Pape Sarr (18) miðjumann Metz. (Sun)

West Ham hefur áhuga á Adam Hlozek (18) framherja Sparta Prag. (90min)

Arsenal, Leicester og West Ham hafa áhuga á Alassane Plea (28) sem er á leið frá Gladbach. (Mail)
Athugasemdir
banner
banner
banner