Fotbolti.net
18.04.21 - 07:00
Victor Pálsson

Minamino óviss hvort hann eigi framtíð á Anfield

Minamino óviss hvort hann eigi framtíð á Anfield
Canon

Mynd: Getty Images

Takumi Minamino, leikmaður Southampton, veit ekki hvort hann eigi framtíð fyrir sér á Anfield í Liverpool.
Minamino var lánaður til Southampton í byrjun árs en hann náði ekki að festa sig í sessi í sterkri sóknarlínu Liverpool.

Þessi 26 ára gamli leikmaður kom frá RB Salzburg í Austurríki en hann tók skrefið til Englands í janúar 2020.

Hvort hann verði leikmaður Liverpool á næstu leiktíð kemur aðeins í ljós í sumar.

„Ég einbeiti mér að nútíðinni og því sem ég get gert núna. Ég er fótboltamaður svo ég veit ekki hvar ég verð að spila eftir sex mánuði," sagði Minamino.

„Ég veit bara að ég vil vera að spila í hæsta gæðaflokki."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.