Fotbolti.net
18.04.22 - 18:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arnór Borg snýr í fyrsta lagi til baka í júlí

Arnór Borg snýr í fyrsta lagi til baka í júlí
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Meiðslasaga Arnórs Borg Guðjohnsen heldur áfram en hann hefur glímt við meiðsli frá því snemma á síðasta ári. Hann hefur ekkert spilað með Víkingi frá því hann gekk í raðir félagsins síðasta haust frá Fylki.

Þegar hann skipti yfir frá Fylki var hann nýbúinn í aðgerð vegna kviðslits en sú aðgerð dugði ekki fyrir Arnór sem fór aftur í aðgerð fyrir viku síðan. Þá fór hann í aðgerð í London og er aðgerðin kölluð „hip arthroscopy" á ensku.
„Ég verð á hækjum næstu 2-3 vikurnar. Læknirinn sagði að í kjölfarið mætti ég hægt og rólega byrja að skokka og svo eftir þrettán vikur ætti ég að verða orðinn heill," sagði Arnór við Fótbolta.net.

Ef það bataferli stenst þá ætti Arnór að koma til baka um miðjan júlí.

Sjá einnig:
Ennþá að jafna sig eftir aðgerðina ('11. janúar)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.