Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   fim 18. apríl 2024 23:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjubikarinn: Þróttur Vogum í úrslit B deildarinnar
Ásgeir Marteinsson
Ásgeir Marteinsson
Mynd: Þróttur V.

Kári 1-2 Þróttur Vogum
1-0 Máni Berg Ellertsson ('47 )
1-1 Ásgeir Marteinsson ('50 )
1-2 Ásgeir Marteinsson ('75 )


Þróttur Vogum er komið áfram í úrslit B deildar Lengjubikarsins eftir sigur á Kára í Akraneshöllinni í kvöld.

Heimamenn náðu forystunni strax í upphafi síðari hálfleiks en Adam var ekki lengi í paradís.

Ásgeir Marteinsson jafnaði metin stuttu síðar og tryggði Þrótturum sigur með marki þegar stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma.

Þróttur mætir annað hvort KFA eða Haukum í úrslitum en seinni undanúrslitaleikurinn fer fram á Dalvíkurvelli á laugardaginn.


Athugasemdir
banner
banner