Það er Steypustöðin sem færir þér úrvalslið hverrar umferðar í Bestu deild kvenna. Núna er komið að úrvalsliði fjórðu umferðar.
Arna Sif Ásgrímsdóttir og Mist Edvardsdóttir, miðverðir Vals, eru báðar í liðinu eftir sigurleik á Stjörnunni og kemst Ásdís Karen Halldórsdóttir, liðsfélagi þeirra, einnig í liðið.
Arna Sif Ásgrímsdóttir og Mist Edvardsdóttir, miðverðir Vals, eru báðar í liðinu eftir sigurleik á Stjörnunni og kemst Ásdís Karen Halldórsdóttir, liðsfélagi þeirra, einnig í liðið.
Valur, Breiðablik og Þróttur eiga flesta fulltrúa að þessu sinni, öll eiga þau þrjá.
Ásta Eir Árnadóttir er í liðinu aðra umferðina í röð og komast Alexandra Jóhannsdóttir og Taylor Marie Ziemer einnig úr Breiðabliki eftir stórsigur á KR. Alexandra var að spila sinn fyrsta leik í sumar eftir að hafa komið heim úr atvinnumennsku frá Þýskalandi.
Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar, er þjálfari umferðarinnar eftir endurkomusigur gegn ÍBV. Í þeim leik var Katla Tryggvadóttir best og átti Sæunn Björnsdóttir mjög góða innkomu af bekknum.
Afturelding vann sinn fyrsta sigur í sumar er þær fóru til Keflavíkur. Christina Clara Settles var mjög góð í leiknum og sömuleiðis markvörðurinn Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving.
Þá er Sif Atladóttir í liðinu öðru sinni eftir sigur Selfoss á Akureyri.
Það eru tvær í liðinu sem voru að leika sinn fyrsta leik í sumar; Auður og Alexandra.
Í kvöld hefst fimmta umferð deildarinnar með þremur leikjum.
miðvikudagur 18. maí
Besta-deild kvenna
17:30 Þróttur R.-Þór/KA (Þróttarvöllur)
19:15 Afturelding-Stjarnan (Malbikstöðin að Varmá)
fimmtudagur 19. maí
Besta-deild kvenna
17:15 Valur-KR (Origo völlurinn)
18:00 Breiðablik-ÍBV (Kópavogsvöllur)
19:15 Selfoss-Keflavík (JÁVERK-völlurinn)
Sjá einnig:
Sterkasta lið 1. umferðar
Sterkasta lið 2. umferðar
Sterkasta lið 3. umferðar
Athugasemdir