18.08.20 - 00:24
Elvar Geir Magnússon
Bálreiðir út í David Silva - Hætti skyndilega að svara í símann

David Silva.

Mynd: Getty Images

David Silva.

Mynd: Getty Images
Hökur fóru í gólf þegar David Silva var skyndilega <a href="https://fotbolti.net/news/17-08-2020/david-silva-til-real-sociedad-stadfest" target="_blank">kynntur sem nýr leikmaður Real Sociedad</a>.
Nær allir bjuggust við því að Silva myndi skrifa undir hjá Lazio, þar á meðal forráðamenn ítalska félagsins.
<i>Sky Sport Italia</i> segir að Lazio hafi verið búið að ná samkomulagi við Silva um þriggja ára samning en leikmaðurinn hafi allt í einu hætt við og ákveðið að fara heim til Spánar.
Sagt er að skyndilega hafi David Silva hætt að svara símtölum frá Lazio fyrir örfáum dögum. Félagið hafi svo komist að því að hann hefði skrifað undir hjá Real Sociedad þegar spænska félagið tilkynnti það.
Honum bauðst lengri og betri samningur til boða hjá Lazio.

Forráðamenn Lazio eru víst bálreiðir og telja að leikmaðurinn hafi sýnt félaginu algjört virðingarleysi.
Silva er 34 ára og hefur verið tíu ár hjá Manchester City og lyft mörgum bikurum. Hann er goðsögn hjá félaginu og búið að tilkynna að hann fái styttu fyrir utan heimavöll City.