Southend United í ensku C-deildinni vill ráða Henrik Larsson sem knattspyrnustjóra.
Southend er í fallsæti í C-deildinni og án sigurs á tímabilinu en Kevin Bond sagði upp störfum sem stjóri þar á dögunum.
Southend er í fallsæti í C-deildinni og án sigurs á tímabilinu en Kevin Bond sagði upp störfum sem stjóri þar á dögunum.
Larsson átti frábæran feril sem leikmaður með Manchester United, Barcelona, Celtic og sænska landsliðinu.
Hann hætti sem þjálfari Helsingborg í sænsku úrvalsdeildinni á dögunum eftir að hafa fengið óblíðar kveðjur frá stuðningsmönnum félagsins.
Hinn 47 ára gamli Larsson er því atvinnulaus í augnablikinu og gæti tekið við Southend.
Athugasemdir