Fotbolti.net
18.09.20 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Mourinho kvartar yfir að eiga of marga leikmenn

Vill minnka hópinn.

Vill minnka hópinn.

Canon

Mynd: Getty Images

Jose Mourinho, stjóri Tottenham, segist vera með of marga leikmenn í leikmannahópi sínum.

Tottenham er að landa Gareth Bale og Sergio Reguilon frá Real Madrid en Mourinho telur að hann þurfi að minnka hópinn og losa sig við einhverja leikmenn.
Dele Alli var ekki í hóp í sigrinum gegn Lokomotiv Plovdiv í Evrópudeildinni í gær og Mourinho var spurður að því hvort hann komi aftur í hópinn gegn Southampton á sunnudag.

„Þú spyrð mig út í Dele. Þú gætir spurt mig um sjö leikmenn sem við skildum eftir heima," sagði Mourinho eftir leikinn í gær.

„Í hreinskilni er ég ekki ánægður með fjölda leikmanna í hópnum. Það er mjög erfitt að stýra þessu. Það er mjög erfitt að takast á við þetta því við erum með of marga leikmenn."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.