Fotbolti.net
18.10.20 - 22:40
Ívan Guðjón Baldursson

Caglar Söyuncu frá keppni í þrjá mánuði

Caglar Söyuncu frá keppni í þrjá mánuði
Canon

Mynd: Getty Images

Tyrkneski miðvörðurinn Caglar Söyuncu var ekki með í kvöld er meiðslahrjáð lið Leicester tapaði fyrir nýliðum Aston Villa.
Söyuncu meiddist í landsleikjapásunni með Tyrklandi og hefur fengist staðfest að hann verður frá í allt að þrjá mánuði.

Hann bætist því á meiðslalistann sem er stöðugt að lengjast. Lykilmenn á borð við Wilfred Ndidi og Jamie Vardy eru þegar fjarri góðu gamni vegna meiðsla.

Ndidi kemur ekki aftur fyrr en í kringum jólin en Vardy gæti verið klár fyrir stórleik gegn Arsenal um næstu helgi.

Söyuncu er aðeins 24 ára gamall og hefur staðið sig frábærlega frá því að hann var keyptur til Leicester fyrir tveimur árum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.