Watkins orðaður við United - Bayern sýnir Díaz áhuga - Arsenal hefur rætt við Eze
   mán 18. október 2021 18:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson
De Bruyne man lítið eftir úrslitaleik Meistaradeildarinnar
Mynd: EPA
Chelsea vann úrslitaleik Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð eftir sigur á Manchester City.

Kevin De Bruyne þurfti að fara af velli eftir slæmt samstuð við Antonio Rudiger varnarmann Chelsea.

Hann meiddist á auga og þurfti að fara í aðgerð en það var óttast um að hann myndi missa af EM. Aðgerðin gekk vel og hann ferðaðist með Belgíu á EM.

Hann missti hinsvegar af fyrsta leiknum og meiddist síðan síðar í mótinu og missti af fyrstu fimm leikjum Man City á tímabilinu.

Hann sagði á blaðamannafundi fyrir leik Man City gegn belgíska liðinu Club Brugge á morgun í Meistaradeildinni að hann muni lítið eftir úrslitaleiknum.

„Ég man ekki mikið eftir atvikið svo ég hef ekki margar minningar. Ég man eftir nokkrum tækifærum í fyrri hálfleik og markinu en eftir samstuðið man ég ekki mikið. Ég man ekki hvernig ég komst á spítalann einu sinni. Svona eru íþróttir, svona gerist."
Athugasemdir