Argentína 2 - 2 Úrúgvæ
0-1 Edinson Cavani ('34)
1-1 Sergio Agüero ('63)
1-2 Luis Suarez ('68)
2-2 Lionel Messi ('91)
0-1 Edinson Cavani ('34)
1-1 Sergio Agüero ('63)
1-2 Luis Suarez ('68)
2-2 Lionel Messi ('91)
Argentína og Úrúgvæ mættust í æfingaleik í Ísrael sem var að ljúka rétt í þessu.
Argentínumenn voru betri í leiknum en Úrúgvæjar nýttu færin sín vel og skoruðu úr báðum skotum sínum á rammann.
Edinson Cavani gerði eina markið í fyrri hálfleik eftir stoðsendingu frá Luis Suarez og var Úrúgvæ yfir í leikhlé, 0-1.
Sergio Agüero jafnaði eftir leikhlé þegar hann skallaði aukaspyrnu Lionel Messi í netið en fimm mínútum síðar var Suarez búinn að jafna með frábæru marki beint úr aukaspyrnu.
Það var þó Messi sem átti lokaorðið þegar hann jafnaði úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Lokatölur 2-2.
Athugasemdir