Markvörðurinn efnilegi Elías Rafn Ólafsson hefur verið valinn í lið haustsins í riðli 2 í dönsku C-deildinni. Danski miðillinn Stiften valdi í liðið.
Elías Rafn leikur fyrir Aarhus Fremad að láni frá FC Midtjylland, sem er eitt af stærstu félögunum í Danmörku.
Hann er fæddur 2000 og er rúmir tveir metrar á hæð. Hann á tvo leiki að baki fyrir U21 landsliðið, einn fyrir U19 og þrjá fyrir U16.
Aarhus Fremad er á toppi síns riðils með 35 stig eftir 16 umferðir. Tólf lið eru í riðlinum.
Athugasemdir