Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   þri 19. janúar 2021 17:00
Magnús Már Einarsson
Guardiola útilokar að fá liðsstyrk í janúar
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segir að félagið muni ekki bæta við leikmanni áður en félagaskiptaglugginn lokar um mánaðarmótin.

Manchester City hefur verið á góðri siglingu að undanförnu og liðið getur komist á toppinn, tímabundið að minnsta kosti, með sigri á Aston Villa annað kvöld.

„Við munum ekki kaupa neinn leikmann í vetrarglugganum," sagði Guardiola við beIN Sports.

„Við höfum ekki rætt þetta sérstaklega en við munum enda tímabilið með leikmennina sem við höfum núna."
Athugasemdir
banner
banner